Skákfélag Mosfellsbæjar
Gauti Páll Jónsson sigurvegari Aprílmóts
Aprílmót Skákfélags Mosfellsbæjar fór fram laugardaginn 11. apríl við góðar aðstæður og var þátttaka með ágætum. Ungir sem aldnir tóku þátt og stemning var með besta móti.
Gauti Páll Jónsson (2293) tefldi af miklu öryggi og vann mótið sannfærandi með fullt hús stiga, 7 vinninga af 7 mögulegum. Dagur Andri Friðgeirsson (2014) fylgdi fast á eftir og endaði í öðru sæti með 6 vinninga.
Í þriðja sæti varð Páll Snædal Andrason (2026) eftir stigaútreikning, en hann hlaut 4,5 vinninga, jafnmarga og Arnar Ingi Njarðarson (1763).
Skákfélag Mosfellsbæjar þakkar öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna og hlakkar til næsta móts í mótaröð félagsins.
Skoða úrslit
Rögnvaldur Jónsson sigurvegari á marsmóti
Marsmót Skákfélags Mosfellsbæjar fór fram laugardaginn 14. mars. Góð þátttaka var í mótinu og tefldar voru sjö umferðir. Mótið var reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga (FIDE). Ungir sem aldnir kepptu við góðar aðstæður og var stemningin með besta móti.
Sigurvegari mótsins varð Rögnvaldur Jónsson (1743) með 6 vinninga af 7 mögulegum. Rögnvaldur bætti þar með stöðu sína frá fyrra móti, þar sem hann hafnaði í þriðja sæti, og steig nú upp á toppinn.
Í öðru sæti varð Kjartan Ragnars með 5,5 vinninga, en hann átti gott mót. Tómas Rasmus (1782) átti einnig gott mót og hafnaði í þriðja sæti, einnig með 5,5 vinninga.
Við þökkum öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna og hlökkum til næsta móts í mótaröð félagsins.
Skoða úrslit
Fyrsta skákmót Skákfélags Mosfellsbæjar
Fyrsta skákmót Skákfélags Mosfellsbæjar var haldið á Valentínusardaginn, 14. febrúar. Alls tóku 15 keppendur þátt og tefldar voru 7 umferðir í spennandi og jöfnu móti.
Gauti Páll Jónsson (2252) stóð uppi sem sigurvegari mótsins með 6 vinninga af 7 mögulegum. Hann tefldi af miklu öryggi allan tímann og vann sex skákir í röð áður en hann laut í lægra haldi í lokaumferðinni.
Í öðru sæti varð Eiríkur K. Björnsson (2051) með 5 vinninga. Í þriðja sæti hafnaði Rögnvaldur Jónsson (1733), einnig með 5 vinninga, en hann vann sigurvegara mótsins í lokaumferðinni. Ómar Jón Hólm Kjartansson (1459) átti gott mót og hafnaði í 4. sæti með 4,5 vinninga.
Við þökkum öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna og hlökkum til næsta móts!
Skoða úrslitÆfingar fyrir börn
Æfingar á fimmtudögum í Varmárskóla
Kl. 16:40-17:30
Fyrir börn sem kunna manngang og helstu skákreglur
Kl. 17:35-18:15
Byrjendakennsla fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í skák
Skákmót
Mánaðarleg hraðskákmót reiknuð til alþjóðlegra stiga.
Laugardaga kl. 12:30-14:30 í Þverholti 2, Mosfellsbæ.
Næsta mót: 9. maí
Hraðskákmót fyrir alla aldurshópa
Þátttökugjöld
Félagsmenn: Ókeypis
Utanfélagsmenn 18+: 1000 kr
Utanfélagsmenn 17 og undir: 500 kr
Mótadagatal 2026
Í túninu heima mót
Dagsetning tilkynnt síðar
Haust 2026
Um félagið
Skákfélag Mosfellsbæjar er nýstofnað skákfélag sem miðar að því að efla skákstarf í bænum. Félagið stendur fyrir vikulegum skákæfingum fyrir börn og mánaðarlegum skákmótum þar sem allir eru velkomnir.
Árgjald: 5000 kr. Ókeypis fyrir börn undir 17 ára.
Meðlimir fá ókeypis aðgang að öllum mótum.
Þjálfarar
Æfingar hjá Skákfélagi Mosfellsbæjar eru leiddar af Degi Andra og Daníel Hákoni. Báðir hafa þeir mikinn áhuga á skák og reynslu af skákstarfi.
Áhersla er lögð á jákvætt og öruggt umhverfi þar sem allir fá að læra á sínum hraða, byggja upp sjálfstraust og njóta skákarinnar í góðum félagsskap.
Gagnlegir hlekkir
Lichess
Ókeypis skákvefsíða
Chess.com
Vinsæl skákvefsíða
ChessKid
Skákvefsíða fyrir börn
ChessKid YouTube
Kennslumyndbönd
Skákkennsla Skáksambands Íslands
Kennsluefni
Mótaáætlun Skáksambands Íslands
Yfirlit yfir skákmót á Íslandi
VignirVatnar.is
Kennsluefni á íslensku
Duolingo
App á Google Store og Apple Store
Hafa samband
Spurningar? Sendu okkur línu.